NTC

230 stelpur kynna sér tækninám og tæknistörf

230 stelpur úr 9. bekkjum tuttugu grunnskóla á Norðurlandi, allt frá Hvammstanga austur á Húsavík, sækja vinnustofur í HA og heimsækja tæknifyrirtæki á Akureyri, þriðjudaginn 15. maí. Viðburðurinn Stelpur og tækni er nú haldinn í annað sinn á Akureyri af Háskólanum í Reykjavík í samstarfi við Háskólann á Akureyri, Samtök iðnaðarins, SKÝ og LS Retail.

Stelpurnar taka þátt í fjölbreyttum vinnusmiðjum í HA í umsjá /sys/tra, félags kvenna í tölvunarfræði við HR, Skema, nemenda í tölvunarfræði og kennara við Háskólann á Akureyri. Viðfangsefnin eru af ólíkum toga, til dæmis kynnast þær forritun, sýndarveruleika, tilraunstofu vélmennum, tölvutætingi og bananaforritun.

Eftir að vinnustofunum lýkur heimsækja stelpurnar fjölbreytt tæknifyrirtæki þar sem konur sem starfa hjá fyrirtækjunum gefa stelpunum innsýn í starfsemina og þau tækifæri sem stelpum bjóðast á vinnumarkaði að loknu tækninámi. Þau fyrirtæki sem taka þátt á Akureyri eru: Isavia, Origo, Wise, Efla, Þula, Raftákn, ÍSOR, Þekking, Promat, Sjúkrahúsið á Akureyri, Menningarfélag Akureyrar og Norðurorka.

Tilgangurinn með Stelpum og tækni er að kynna möguleika í tækninámi  og tæknistörfum fyrir stelpum í 9. bekk grunnskóla, kynna þær fyrir fyrirmyndum í tækni og opna augu þeirra fyrir framtíðarmöguleikum sem tæknigreinar bjóða. Viðburðurinn er nú haldinn í fimmta sinn. Nýlega sóttu um 750 stelpur af höfuðborgarsvæðinu Stelpur og tækni í HR. Stefnt er að því að gefa stelpum annars staðar á landinu tækifæri til að taka þátt næsta haust.

Dagurinn er haldinn að fyrirmynd Girls in ICT Day sem haldinn er víða um heim af ITU (International Telecommunication Union), samtökum um upplýsinga- og samskiptatækni innan Sameinuðu þjóðanna.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó