22 í sveinsprófi í húsasmíði í VMA

22 í sveinsprófi í húsasmíði í VMA

Um liðna helgi þreyttu 22 sveinspróf í húsasmíði í húsakynnum byggingadeildar VMA. Sama próf var lagt fyrir verðandi húsasmíði í fjórum öðrum framhaldsskólum, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki, Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og í tveimur skólum í Reykjavík, Tækniskólanum og Fjöbrautaskólanum í Breiðholti. Samtals þreyttu um 130 sveinspróf í húsasmíði að þessu sinni en prófað er tvisvar á ári, í janúar og júní. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef VMA.

„Að þessu sinni fengu próftakar það verkefni að smíða snúinn stiga, sem svo er kallaður. Vissulega ekki einfalt verkefni, eiginlega miklu frekar töluvert snúið og því þurftu próftakar að nýta tímann vel. Verklegi þáttur prófsins samanstóð af málsetningum, samsetningum, áferð og brýnslu,“ segir í tilkynningu VMA.

Hér má sjá myndir af vef VMA

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó