Umsóknarfrestur fyrir lögreglufræði við Háskólann á Akureyri rann út 26. mars síðastliðinn. Alls sóttu 214 um en 80 stúdentar eru teknir inn í námið.
Umsóknum fækkar frá því á síðasta ári þegar nýtt met var slegið og 232 sóttu um. Árið 2024 bárust 191 umsókn og 2023 voru þær 190. Háskólinn á Akureyri er eini háskólinn á Íslandi sem býður upp á nám í lögreglufræði. Námið veitir réttindi til að starfa sem lögreglumaður.
„Núna tekur við inntökuferlið. Þegar því lýkur er ljóst hverjum verður boðið námspláss. Námið hefst svo formlega 24. ágúst á nýnemadögum háskólans, þegar lögreglufræðinemarnir mæta í fyrstu námslotuna sína á Akureyri. Þetta er tveggja ára diplómanám,” segir Sólveig María Árnadóttir, verkefnastjóri samfélagsmiðla og samskipta hjá háskólanum, í samali við fréttastofu RÚV.










