Undanfarna daga hafa nemendur í 2. bekk grunnskóla Akureyrar sótt sýninguna Leyndardómar leikhússins í Samkomuhúsið. Verkefnið er samstarf Leikfélags Akureyrar og Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar og er sett upp í tengslum við alþjóðlegan dag barnaleikhússins þann 20. mars. Í sýningunni, sem er í formi leiðsagnar, kynnast börnin starfsemi leikhússins, þar á meðal búningum, förðun og tæknivinnu. Markmiðið er að gera heimsóknir sem þessar að árlegum viðburði fyrir 2. bekk á Akureyri og í nágrenni.
„Leikhúsrotturnar tvær, Rómeó og Júlía, hafa tekið vel á móti þessum föngulegu börnum, leitt þau um húsið og kynnt þeim leikhúsið og galdra þess. Ferðin í gegnum leikhúsið bauð upp á eitthvað skemmtilegt og forvitnilegt við hvert fótmál. Hrekkjóttur húsdraugur stríddi hópnum og Rómeó og Júlía sýndu honum virðingu en snéru hann af sér og héldu áfram ferð sinni í leit að viðeigandi búningum og sminki til þess að geta gert litla leiksýningu, þar sem börnin eru þátttakendur úti í sal. Undrun og gleði skein af hverju andliti og öll voru þau til í að hjálpa leikhúsrottunum, með miklum leikrænum tilþrifum,“ segir á vef MAk.
Leikstjóri og handritshöfundur er Jenný Lára Arnórsdóttir, þau Níels Thibaud Girerd og Sólveig Guðmundsdóttir sem glæða gestgjafana og leikhúsrotturnar lífi. Tæknihönnuður er Ágúst Örn Pálsson, búningahönnun er í höndum Bjargar Mörtu Gunnarsdóttur og sýningarstjórar eru þær Þórunn Geirsdóttir og Þórgunnur Oddsdóttir.










