Einn miðahafi var með allar tölur réttar í Lottó í kvöld og hlýtur sá heppni rúmlega 18 milljónir í vinning. Miðinn var keyptur hjá Hagkaupum, Furuvöllum á Akureyri.
Einn var með fjórar réttar tölur auk bónustölunnar og fær hann rúmlega 394 þúsund krónur í vinning. Miðinn var keyptur Olís, Dalvík.
UMMÆLI