Um 16 þúsund gestir renndu sér í Hlíðarfjalli í Dymbilvikunni og fram á Annan í páskum. Þetta voru stærstu páskarnir í fjallinu í 16 ár. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu Hlíðarfjalls.
„Sem er magnað þar sem veðrið var að stríða okkur í Dymbilvikunni og það var lokað á Skírdag. Það má segja að það hafi strax farið að vora í gær þegar hlýnaði og nú er páskapúðrið búið að breytast í blautan vorsnjó. Það á þó að frysta aftur um helgina sem er frábært því þá ætti þessi snjór sem við höfum í fjallinu að standa vel síðustu vikurnar hjá okkur fram að 50. Andrés andar leikunum sem verða þeir stærstu hingað til með tæplega 1100 þátttakendum. Okkur hlakkar mikið til að klára tímabilið með stæl með öllum þessum flottu krökkum,“ segir í tilkynningunni.
Opið verður í Hlíðarfjalli alla daga fram til 25. apríl.










