MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

16 tekjuhæstu Akureyringarnir

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
Akureyri
Akureyri-krissi· kaffid.is

Heimildin hefur birt sinn árlega Hátekjulista sem sýnir tekjuhæstu 1% Íslendinga. Listinn gefur heildstæða mynd af tekjum þar sem hann tekur ekki einungis mið af hefðbundnum launatekjum, heldur einnig fjármagnstekjum líkt og arðgreiðslum til eigenda fyrirtækja.

Heimildin hefur tekið gögnin saman og skipt þeim niður eftir sveitarfélögum. Mannlíf hefur síðan gert lista yfir þá 16 einstaklinga sem höfðu mestar tekjur á Akureyri. Geir Valur Ágústsson er þar á toppnum en hann er jafnframt í 9. sæti á heildarlista yfir landið allt. Í 16. sæti á Akureyri er síðan Gunnar Björn Þórhallsson, sem situr í 458. sæti á landsvísu. Hér er hægt að sjá listann frá því í fyrra yfir 17 tekjuhæstu Akureyringana.

16 tekjuhæstu einstaklingarnir á Akureyri:

  1. Geir Valur Ágústsson – framkvæmdastjóri fjármálasviðs Air Atlanta: 1.275.344.133 kr.
  2. Sveinn Helgi Sverrisson: 580.331.173 kr.
  3. Erik Jensen – fyrrverandi eigandi B. Jensen: 483.112.295 kr.
  4. Sigurbjörg Ósk Jónsdóttir: 401.706.732 kr.
  5. Hrafnhildur Björgvinsdóttir – hjúkrunarfræðingur: 394.101.227 kr.
  6. Hjörtur Rósmann Ólafsson: 374.781.673 kr.
  7. Egill Einarsson – eigandi íþróttavöruverslunarinnar Sportvers: 338.792.916 kr.
  8. Þorsteinn Már Baldvinsson – fyrrverandi forstjóri Samherja: 223.048.180 kr.
  9. Haraldur Pálsson – pípulagningameistari og framkvæmdastjóri Áveitunnar: 206.733.168 kr.
  10. Guðný Fjóla Sigurðardóttir – stjórnarformaður og einn eigenda ZETO: 205.245.738 kr.
  11. Ingi Lár Vilbergsson – vélstjóri og eigandi DKG heildverslunar: 185.394.354 kr.
  12. Guðmundur S. Hjálmarsson: 180.548.238 kr.
  13. Steingrímur Birgisson – forstjóri Höldur (Bílaleiga Akureyrar): 152.422.481 kr.
  14. Elfa Ágústsdóttir – dýralæknir: 127.322.548 kr.
  15. Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir – fjármálastjóri hjá Dekkjahöllinni: 116.728.547 kr.
  16. Gunnar Björn Þórhallsson – forstjóri Tengis á Akureyri: 114.670.097 kr.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026