MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

12 manns gefa kost á sér í fimm efstu sæti VG í Norðaustur­kjördæmi

Eftir Ingólfur Stefánsson·
FrambjodendurNA2021_WEB
kaffid.is

12 manns gefa kost á sér í forvali um fimm efstu sætin, sem er rafrænt og verður haldið 13. – 15. febrúar 2021. Á fundi kjörstjórnar með frambjóðendum í gærkvöld var ákveðið að halda þrjá málefnafundi með þeim sem eru í framboði.

Fundirnir verða allir fjarfundir á zoom og haldnir:

Laugardag 6. febrúar kl 11:00

Miðvikudag 10 febrúar kl 20:00

Laugardag 13. febrúar kl 11:00

Þau 12 sem bjóða sig fram á lista VG í forvalinu eru:

Angantýr Ásgeirsson, sálfræðinemi, Akureyri.

Ásrún Ýr Gestsdóttir, nemi, Akureyri.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Alþingismaður, Ólafsfirði, 1. sæti.

Cecil Haraldsson, fyrrverandi sóknarprestur, Seyðisfirði, 4.-5. sæti.

Einar Gauti Helgason, matreiðslumeistari, Akureyri.

Helga Margrét Jóhannesdóttir, hjúkrunarfræðingur og meistaranemi, Eyjafjarðarsveit.

Ingibjörg Þórðardóttir, framhaldsskólakennari, Neskaupsstað. 1 – 2 sæti.

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, varabæjarfulltrúi, Akureyri, 3. sæti.

Jódís Skúladóttir, lögfræðingur, verkefnastjóri og sveitarstjórnarfulltrúi, Múlaþingi 2. sæti.

Kári Gautason, framkvæmdastjóri í fæðingarorlofi, Reykjavík, 2. sæti.

Óli Halldórsson, forstöðumaður, Húsavík, 1. sæti .

Sigríður Hlynur Helguson Snæbjörnsson, bóndi, Þingeyjarsveit.

Tengdar greinar

Uppfært: 25. apríl 2026