Á morgun, miðvikudaginn 11. febrúar, verður 112 dagurinn haldinn hátíðlega víða um land. Markmið dagsins er að minna á þetta mikilvæga neyðarnúmer ásamt því að þakka neyðarvörðum og öðrum viðbragðsaðilum fyrir þeirra ómetanlegu störf. Dagsetningin 11.2. er táknræn og hjálpar landsmönnum að muna þetta lífsnauðsynlega númer.
Þema 112 dagsins árið 2025 er 30 ára afmæli Neyðarlínunnar. Neyðarverðir taka á móti öllum erindum sem berast 1-1-2 og vinna úr þeim. Þau veita stuðning og leiðbeiningar og sjá til þess að málin fari í réttan farveg.
Til þess að samstarf innhringjanda og neyðarvarðar gangi sem farsællegast er gagnlegt að vera viðbúinn að svara eftirfarandi spurningum þegar hringt er í 1-1-2.
· Hvar er atburðurinn?
· Hver ert þú?
· Hvað gerðist?
· Hvenær gerðist atburðurinn?
Á höfuðborgarsvæðinu verður 112 dagurinn haldinn í Smáralind með dagskrá frá kl. 15:00 – 18:00 Þar munu viðbragðsaðilar kynna starf sitt og veita fræðslu um öryggi og viðbrögð ásamt því að Björnis Brunabangsi kíkir í heimsókn, Dómsmálaráðherra flytur ávarp og Landssamband slökkviliðs og sjúkraflutningamanna veitir verðlaun í árlegri eldvarnargetraun sem þriðjubekkingar taka þátt í.
Í öllum landshlutun verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá í tilefni dagsins. Á Akureyri verður sameiginleg dagskrá viðbragðsaðila við Glerártorg sunnudaginn 15. febrúar frá kl. 12:00 – 15:00 en þar mun Rauði Kross Íslands útnefna skyndihjálparmanneskjurársins 2025.
Landsmenn eru hvattir til að fylgjast með samfélagsmiðlum og bæjarmiðlum í sínu héraði og taka virkan þátt í 112 deginum.
Að auki er Dagur íslenska táknmálsins haldinn hátíðlegur 11. febrúar ár hvert, og verður dagskráin í Reykjavík og á Akureyri túlkuð á táknmáli.
Nánari upplýsingar um viðburði á hverjum stað má finna á heimasíðu Neyðarlínunnar: https://www.112.is/112-dagurinn
—————————————-
Viðburðir á Norðausturlandi
Akureyri
Miðvikudaginn 11. febrúar kl. 17.30 ætla viðbragðsaðilar á svæðinu að keyra hring á Akureyri á forgangsljósum í tilefni 1-1-2 dagsins.
Sjá nánar: https://fb.me/e/aTGAM0cST
Sunnudaginn 15. febrúar, milli kl. 12 og 15 gefst öllum tækifæri til að kynna sér störf viðbragðsaðila á Akureyri á Glerártorgi. Björnis Brunabangsi mun vera á svæðinu.
- Skyndihjálparmanneskja ársins verður útnefnd af Rauða krossinum.
- Verðlaun veitt í eldvarnargetraun Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
Sjá nánar: https://fb.me/e/6Q6n4iGRj
Dalvíkurbyggð
Miðvikudaginn 11. febrúar verður farið í leikskólaheimsóknir. Þá verður opið hús hjá öllum viðbragðsaðilum Dalvíkurbyggðar að Gunnarsbraut milli kl. 16:00 – 18:00
Fjallabyggð
Miðvikudaginn 11. febrúar verður opið hús hjá Björgunarsveitinni Tind á Ólafsfirði milli kl. 17:00 – 19:00. Slysavarnadeildin Hyrna mun bjóða upp á vöfflur og kaffi. Sjúkraflutningar HSN, Lögreglan Norðurlandi Eystra og Slökkvilið Fjallabyggðar verða á staðnum með tæki og tól sem hægt verður að skoða.
Grenivík
Miðvikudaginn 11. febrúar verða Slökkvilið Grýtubakkahrepps og Björgunarsveitin Ægir með hópakstur um bæinn. Farið verður af stað kl. 10:00 og endað við leik- og grunnskólann þar sem börnunum gefst tækifæri til að skoða farartækin.
Húsavík
Miðvikudaginn 11. febrúar munu Slökkvilið Norðurþings, sjúkraflutningar HSN, Björgunarsveitin Garðar og Lögreglan Norðurlandi Eystra heimsækja leikskóla og skóla.
Þórshöfn
Miðvikudaginn 11. febrúar verða Slökkvilið Langanesbyggðar og sjúkraflutningar HSN með bláljósaakstur um bæinn og heimsækja leik- og grunnskóla.










