100 manns gengu eða hlupu á Akureyri til minningar um Sólveigu Huldu
Um 100 manns komu saman við skautahöllina á Akureyri síðastliðinn laugardag og gengu eða hlupu til stuðnings hlaupurum Reykjavíkurmaraþonsins sem hlupu til minningar um tvær Sólveigar Huldur sem kvöddu of snemma og heittu á Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri.
„Það var mögnuð appelsínugul fylking úr samfélaginu okkar sem spretti af stað frá höllinni í gærmorgun, mátti þar sjá sjálfboðaliða, dómara, leikmenn, stjórnarfólk, fjölskyldu, vini og velunnara Sólveigar og fjölskyldu. Gengið var upp Miðhúsabraut, norður Þórunnarstræti að sjúkrahúsinu, niður Spítalaveginn og suður Aðalstrætið og endað í höllinni þar sem grillaðar pylsur og drykkir biðu þátttakenda,“ segir í tilkynningu á samfélagsmiðlum Skautafélags Akureyrar.
„Það er óhætt að segja að þetta var góð stund, þar sem ungir sem aldnir komu saman, elsti að nálgast 95 árin og yngsta rétt 3 mánaða. Það var gott að hittast, hreyfa sig og njóta stundarinnar í minningu Sollu.“
8.890.000 krónur söfnuðust í Reykjavíkurmaraþoninu í hlaupahópnum Til minningar um Sólveigu Huldu
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










