Trilludagar á Siglufirði um helgina
Eftir María Hjelm·

Fjölskylduhátíðin Trilludagar á Siglufirði fer fram laugardaginn 25. júlí. Dagskrá hefst klukkan 10 á hafnarsvæðinu.
Á Trilludögum ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Gestum verður boðið á sjóstöng og í útsýnissiglingu út á fjörðinn. Kiwanismenn standa grillvaktina þar sem öllum verður boðið að smakka dýrindis fisk beint úr hafi. Hoppukastalar á svæðinu fyrir börnin, tónlistin mun svo óma af Trillusviði yfir daginn sem endar á Bryggjuballi um kvöldið fyrir alla fjölskylduna.
Nánari upplýsingar á fjallabyggd.is
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










