Söfnuðu 6 milljónum fyrir Gedda

Knattspyrnudeild Þórs á Akureyri afhenti Gesti Arasyni, Gedda, upphæð úr sérstakri treyjusölu félagsins í dag. Samtals söfnuðust 6 milljónir með sölu á sérhannaðri Þórstreyju.

Geddi greindist með bráða hvítblæði þann 5. maí síðastliðinn. Þórsrara hófu sölu á treyjunni í byrjun júní og á tæpum tveimur sólarhringum seldust 736 treyjur. Allur ágóði af sölunni fór beint til Gests og fjölskyldu.

„Í dag afhentum við Gedda vini okkar upphæðina sem hann fær úr treyjusölunni sem eru 6 milljónir. Við þökkum enn og aftur kærlega fyrir stuðninginn við Gedda okkar ❤️ Á myndinni eru Geddi og Erla ásamt Jasoni Orra sem hannaði treyjurnar og Evu starfsmanni Macron sem framleiddu treyjurnar og aðstoðuðu okkur gríðarlega í öllu ferlinu,“ segir á samfélagsmiðlum Þórs í dag.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!