Skiptar skoðanir á Siglufirði vegna byggingar Samkaupa á verslunarkjarna 

Skiptar skoðanir á Siglufirði vegna byggingar Samkaupa á verslunarkjarna 

Það er ljóst að fyrirhuguð nýbygging Samkaupsbúðar í miðbæ Siglufjarðar hefur vakið talsverða athygli og umræðu í samfélaginu.

Af nítján innsendum athugasemdum á skipulagsgáttinni virðast flestar vera neikvæðar, þar sem andmælin byggja á málefnalegum sjónarmiðum er lúta að umhverfisáhrifum, öryggismálum, fjármálum og varðveislu menningarlegra sérkenna bæjarins.

Einnig hefur það vakið athygli hversu illa hefur verið staðið að því að auglýsa aðgengi íbúa að umsögnum á vefsíðu sveitarfélagsins. Eina fréttin sem hefur verið birt á vefsíðu Fjallabyggðar var 13. nóvember undir fyrirsögninni, Auglýsing um skipulag í Fjallabyggð.

Hér er slóð á umsagnir á skipulagsgáttinni:

Skoða/skrifa umsagnir: HÉR

Opið verður fyrir umsagnir til 2. janúar 2025.

Nánar um málið af vef Trölla:

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó