MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fréttir

Sigrún Ingimarsdóttir ráðin Amtsbókavörður

Eftir Rúnar Freyr Júlíusson·
sigrun-ingimarsdottir-1800×1044
kaffid.is

Sigrún Ingimarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Amtsbóka- og Héraðsskjalasafnsins. Hún tekur við starfinu af Hólmkeli Hreinssyni. Þetta kemur fram á heimasíðu Akureyrarbæjar, þar sem eftirfarandi kemur fram um Sigrúnu:

Sigrún er fædd og uppalin á Akureyri. Hún lauk stúdentsprófi frá Verkmenntaskólanum á Akureyri árið 1987 og B.A.-prófi í bókasafns- og upplýsingafræði frá Háskóla Íslands árið 1992. Samhliða starfi sínu stundar hún meistaranám í stjórnun við Háskólann á Akureyri.

Að loknu námi hóf Sigrún störf hjá bókasafni Seðlabanka Íslands en var ráðin til starfa við Amtsbókasafnið á Akureyri árið 1993. Frá árinu 1996 hefur hún gegnt starfi deildarstjóra lestrarsals- og skylduskiladeildar og jafnframt verið staðgengill amtsbókavarðar.

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026