Önnur áritun Rasmus Rask dúkkar upp á Amtinu

Grenndargralið hefur nú um nokkurt skeið rýnt í gamlar skruddur sem geymdar eru á Akureyri í tengslum við rannsóknir á sögu heimabyggðar. Sérstaða bókanna felst ekki síst í einstökum áritunum sem í þeim leynast. Má t.d. nefna áritaða bók sem Fjölnismaðurinn Tómas Sæmundsson fékk að gjöf frá Joseph Paul Gaimard árið 1836. Annað dæmi er bók sem málfræðingurinn og Íslandsvinurinn Rasmus Christian Rask áritaði og gaf þáverandi amtmanni á Möðruvöllum í Hörgárdal, Stefáni Thorarensen. Gralið hefur nú fundið aðra bók í kjallara Amtsbókasafnsins á Akureyri sem inniheldur áritun Rasmus Rask. Bókin Dansk Retskrivingslære kom út árið 1826 og eins og í tilfelli fyrri bókarinnar er Rask höfundur. Umrætt eintak er stílað til gamals vinar, þáverandi amtmanns Gríms Jónssonar. Athygli vekur að bókin er árituð níu mánuðum, upp á dag, eftir að eldur blossaði upp á heimili Gríms á Möðruvöllum í Hörgárdal þar sem heimili hans og innanstokksmunir brunnu til kaldra kola.

Ítarlegri umfjöllun um fundinn má nálgast á heimasíðu Grenndargralsins.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!