Niðurstöður sveitarstjórnarkosninga í Svalbarðsstrandarhreppi

Niðurstöður sveitarstjórnarkosninga í Svalbarðsstrandarhreppi liggja nú fyrir, en þær voru tilkynntar á heimasíðu hreppsins rétt í þessu. Í dag standa yfir sveitarstjórnarkosningar um allt land og er Svalbarðsstrandarhreppur fyrsta sveitarfélag landsins til þess að skila inn lokatölum, enda kjörstaðir enn opnir í mörgum sveitarfélögum. Niðurstöðurnar hljóða svo
Atkvæðaskipti:
H-listi Strönd til framtíðar fékk 100 atkvæði og 2 menn kjörna
S-listi Samstöðu fékk 67 atkvæði og 1 mann kjörinn
Ö-listi Ströndungs fékk 121 atkvæði og 2 menn kjörna
Fjórir skiluðu inn auðu
Þrír kjörseðlar töldust ógildir
Í nýrri sveitarstjórn eiga því sæti:
Bjarni Þór Guðmundsson Ö-listi
Ólafur Rúnar Ólafsson H-listi
Sigríður Ingibjörg Stefánsdóttir S-listi
Árný Þóra Ágústsdóttir Ö-listi
Gréta María Halldórsdóttir H-listi
Frábær kjörsókn
Í Svalbarðsstrandarhreppi voru 377 á kjörskrá og 295 greiddu atkvæði, sem gerir kjörsókn 78,2%.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










