MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Maus-lögin hljóma aftur í kjallara á Eyrinni

Eftir Ingólfur Stefánsson·
biggimaus2
kaffid.is

Í litlum kjallara í húsi á Eyrinni hefur Birgir Örn Steinarsson, Biggi Maus, verið að enduruppgötva gamla rokksmelli frá ferli sínum. Þar hefur Birgir Örn tekið upp HeimaSession þar sem hann sest við píanóið, syngur og spilar lög frá eigin ferli, stundum lög sem hann hafði ekki spilað í mörg ár.

Birgir lærði á píanó sem barn en hljóðfærið hafði ekki verið stór hluti af tónlistarlífi hans undanfarin ár. Þegar hann settist aftur við píanóið uppgötvaði hann svolítið. „Ég kann ekki Maus-lögin á píanó,“ segir hann í viðtali við Popparasögur, viðtal sem er framleitt og unnið í Eyjafirði.

Það sem byrjaði sem verkefni fyrir hann sjálfan þróaðist fljótlega í HeimaSession, þar sem hann hefur tekið upp um 25 lög og birt á samfélagsmiðlum sínum. Flest þeirra hafa komið inn sem óskir frá fólki í gegnum athugasemdir. Úr þessu hefur hins vegar orðið eitthvað stærra og meira. Birgir segist hafa fundið ákveðna gleði í því að taka lögin sín og sjá þau í nýju ljósi.

Nú hefur hann ákveðið að færa HeimaSessionina af skjánum og á svið. Þann 12. september verður hann með tónleika á Silfurtunglinu í Reykjavík þar sem lögin fá svipaðan búning og þau hafa fengið í kjallaranum.

Birgir Örn útilokar ekki að halda samskonar tónleika á Akureyri innan tíðar þó að staður og stund hafi ekki verið ákveðin á þessum tímapunkti. En eitt er ljóst að fólk kann vel að meta kjallaraútgáfur Birgis af lögunum hans.

Hlustaðu á Popparasögur:

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026