NTC

Lokun vegna endurnýjunar á hitaveitulögnMynd: Eyjafjarðarsveit

Lokun vegna endurnýjunar á hitaveitulögn

Um þessar mundir er unnið að því að endurnýja hitaveitulögn meðfram Hrafnatröð (fyrrum Eyjafjarðarbraut Vestri) á Hrafnagili á vegkaflanum nærri viðbyggingu leikskólans á Hrafnagili.

Er þetta liður í framkvæmdum við gatnagerð sem og byggingu leikskólans sjálfs. Vegkaflanum verður af þeim ástæðum lokað meðan á framkvæmdunum stendur.

„Búast má við áframhaldandi ónæði á komandi vikum vegna framkvæmdanna en hjáleið er um Laugartröð meðan á lokunum stendur,“ segir í tilkynningu Eyjafjarðarsveitar.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó