Fyrir mörgum íslendingum fá jólin ekki að koma fyrr en búið er að gæða sér á kæstri skötu á Þorláksmessu. Það sem sker hins vegar í leikinn er að ekki stendur alltaf til boða að halda skötuveislu á eigin heimili, sérstaklega ef makar, börn eða meðleigjendur eru viðkvæmir fyrir lyktinni.
Við á Kaffinu höfum því, líkt og í fyrra, tekið saman þá veitingastaði á Akureyri sem munu bjóða upp á skötuhlaðborð þessa Þorláksmessuna. Hugsanlegt er að lesendur verði við heimkomu látnir skipta um föt úti á svölum af sambýlisfólki sínu, en hvað leggur maður ekki á sig fyrir góða skötu?
Hér að neðan er listi af þeim veitingastöðum sem gefið hafa út að skata verði í boði á Þorláksmessu. Fréttin verður uppfærð eftir því sem upplýsingar berast. Hafa ber í huga að á sumum stöðum gæti þurft að panta borð með fyrirvara og á sumum stöðum gæti verið fullbókað þegar fréttin er lesin.
Bautinn
Strikið
Múlaberg
Greifinn
Lyst
UMMÆLI