Heimsóknardagur á Landsmóti skáta
Eftir María Hjelm·

Á Landsmóti skáta í Hömrum á Akureyri koma nú saman rúmlega 2000 til 3000 skátar á aldrinum 10–17 ára frá um 20 löndum. Þemað í ár er „á norðurslóð“ og mótið stendur yfir til 26. júlí.
Laugardaginn 25. júlí verður haldinn heimsóknardagur þar sem félögin bjóða upp á skemmtiatriði, matarsmakk, leiki og margt fleira sem tengist heimabæ þeirra, landi eða þjóð. Heimsóknardagurinn fer fram milli klukkan 13–17 og er opinn öllum.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










