Mynd: Ármann Hinrik/thorka.is

Ekki talað við leikmenn Þór/KA um ávörðunina

Í gær tilkynnti KA að ákveðið hefði verið að slíta samtarfi við Þór um að tefla saman liði í kvennaknattspyrnu. Liðin hafa verið með sameinað lið í kvennaknattspyrnu frá 1993 og spilað undir nafni Þór/KA síðan 1999. Hulda Björg Hannesdóttir sem var fyrirliði liðs Þórs/KA segir að það hafi verið sárt að fá tíðindin í gær í samtali við Fótbolta.net.

„Ég er gríðarlega vonsvikin með ákvörðunina, en ekki síður hvernig staðið var að henni gagnvart okkur leikmönnum og fólkinu innan Þór/KA. Það fór aldrei fram samtal við okkur um að þetta gæti orðið niðurstaðan. Það sem mér finnst kannski erfiðast er að við skyldum ekki fá að vita af ákvörðuninni fyrst. Ég hefði viljað að það hefði verið samtal og að okkur hefði verið gefinn kostur á að vita hvað væri í gangi áður en þetta varð að veruleika. Að þurfa að frétta þetta á sama tíma og fólk úti í bæ finnst mér mikil vanvirðing gagnvart okkur sem höfum lagt hjarta okkar og sál í félagið. Ég er mjög stolt af því sem við höfum afrekað og byggt upp í Þór/KA og finnst sorglegt að þetta endi með þessum hætti,“ segir Hulda við Fótbolta.net.

Hulda segist hafa vitað um að það myndi fara fram fundur um samstarfið en að hún hafi ekki verið meðvituð um að þetta yrði útkoman. Hún segist hafa frétt af ákvörðuninni út í bæ áður en fundurinn hafi farið fram. Það hafi verið mjög sérstakt og svekkjandi, sérstaklega í ljósi þess að það eru leikmennirnir sem þetta hefur bein áhrif á.

Hún segir að mikið sé óljóst í augnablikinu en að hún hafi átt samtöl við fólk hjá Þór og fundið fyrir miklum meðbyr og vilja til að vinna með leikmönnunum að næstu skrefum.

Nánar er rætt við Huldu á vef Fótbolta.net hér.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!