Garðar Finnsson í Mývatnssveit, Svala Fanney á Grenivík og Ester Líf á Akureyri eru meðal prjónaranna í nýrri markaðsherferð fyrir áfangastaðinn Ísland. Þau taka þátt í þjónustu þar sem íslenskir prjónarar sækja fjarfundi og prjóna fundarnótu úr íslenskri ull.
Garðar Finnsson er fæddur og uppalinn í Mývatnssveit og býr þar enn. Móðir hans kenndi honum að prjóna og sköpunin er það sem heillar hann mest. Svala Fanney á Grenivík lærði hins vegar hjá ömmu sinni sem barn. Eftir langt hlé tók hún prjónana upp á ný og sækir nú slökun og nærveru í handverkið.
Ester Líf ólst upp á Árskógssandi en býr á Akureyri. Besta vinkona hennar kenndi henni að prjóna og hún féll strax fyrir handverkinu. „Það er svo róandi og ég get kúplað mig út í smástund án þess að festast í endalausu skrolli í símanum. Svo leiðist mér aldrei lengur,“ segir Ester.
Hlekkur á myndband frá Norðurlandi eystra
Herferðin gengur undir nafninu AI Knittakers (Authentic Icelandic Knittakers) og beinir sjónum að sítengdri fundamenningu nútímans og auknum kröfum um afköst á tímum gervigreindar. Ísland býður fram prjónara sem leysa einstaklinga af á fjarfundum svo það geti nýtt tímann í eitthvað annað, til dæmis komið til Íslands.
Á tímum þegar gervigreind og tækni skipa sífellt stærri sess í daglegu lífi er skemmtilegt að sjá íslenska prjónara minna okkur á gildi þess að hægja á og vera til staðar. Herferðin er um leið boð um að skipta daglegu amstri út fyrir ferðalag sem nærir líkama og sál. Á Norðurlandi gefast fjölmörg tækifæri til að aftengjast tækninni og tengjast náttúrunni, hvort sem það er í kyrrðinni, heitri laug eða gönguferð í fallegu umhverfi. Í því felast lífsgæði sem við viljum bjóða fólki að upplifa,“ segir Halldór Óli Kjartansson hjá Markaðsstofu Norðurlands.
Um er að ræða alvöru þjónustu, en alls taka nærri 30 prjónarar úr öllum landshlutum þátt í verkefninu. Prjónararnir sitja fundi, lesa salinn og taka eftir gildishlöðnum þögnum, viðbrögðum og ágreiningi. Afurðin er eitt prjónað orð sem endurspeglar inntak fundarins. Markmið herferðarinnar er að kynna Ísland sem vellíðunaráfangastað þar sem fólk getur notið heitra lauga, náttúru og upplifunar sem endurnærir.
„Samkeppnin um ferðamenn hefur aldrei verið harðari og fleira keppir um athygli fólks en nokkru sinni. Þess vegna þarf markaðssetning Íslands að vekja athygli. Við vitum hvað fólkið sem við tölum við vantar: tíma, hvíld, náttúru og fólk sem hlustar,“ segir Daði Guðjónsson, forstöðumaður markaðssamskipta hjá Íslandsstofu.
Þjónustan er ókeypis fyrir ferðamenn á lykilmörkuðum gegnum AIKnittaker.com frá 29. október til 20. nóvember. Herferðin er hluti af markaðsverkefninu Ferðaþjónusta til framtíðar sem Íslandsstofa rekur fyrir hönd íslenskrar ferðaþjónustu í samstarfi við stjórnvöld, Samtök ferðaþjónustunnar og markaðsstofur landshlutanna.
Herferðin er unnin í samstarfi við Peel og M&C Saatchi. Þóra Hilmarsdóttir leikstýrði og Skot sá um framleiðslu.










