MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Davíð Máni gefur út tvö ný lög

Eftir María Hjelm·
Davidh-Mani-1
kaffid.is

Akureyrski tónlistarmaðurinn Davíð Máni gefur út nýjan singúl 31. júlí með lögunum God’s The Devil og The Entity.

„God’s The Devil fjallar um, eins og titillinn gefur til kynna, spurninguna hvort Guð sé raunverulega Djöfullinn. Ástæðan er sú að þetta lag varð til í kjölfar persónulegra atburða í lífi mínu, en það sem snerti textann og lagið hvað mest var að missa einn af barnæsku vinum mínum í fyrra, án þess að fara nánar út í það. En mér finnst textinn lýsa vel tilfinningum sem geta blossað upp við þannig aðstæður. The Entity er lauslegra, og ég veit raunverulega ekki hvað textinn er um, ætli það sé ekki bara um hvernig brestir manns og innri átök ná manni alltaf aftur og maður getur alltaf átt í einhverri baráttu við eitthvað, það er allavegana túlkun mín í dag. Ég skrifaði þann texta í flýti og fyrstu orðin sem mér datt í hug notaði ég. En bæði lögin eru þung, The Entity hinsvegar er mikið þyngra og er meira „kick in the ass“ lag, á meðan God’s The Devil er þyngra tilfinningalega,“ segir Davíð Máni um nýju lögin.

Ánægður með útkomuna

„Mér leiddist að vera ekki búinn að gefa neitt út af eigin efni í meira en ár og þar af leiðandi gramsaði ég aðeins í „demo“ upptökum þar sem ég var með þessi tvö lög. Úr því varð brennandi áhugi á að koma þessum lögum í form þannig ég heyrði í Halla (Hallgrímur Jónas Ómarsson), en hann sá um upptökur og hljóðblöndun og við eyddum sirka 3 klukkustundum í að taka allt upp. Gítar, söng, bassa og trommur, sem ég spilaði allt inn sjálfur, fyndið að segja frá því að ég var ný stiginn upp úr hálsbólgu og tók lagið upp með kvef en það gaf röddinni karakter sem passaði vel við lögin og tóninn í þeim. Það er gaman að vaxa í þessu sem tónlistarmaður og ég var með fleiri uppástungur en áður þegar kom að hljóðblönduninni, þó svo að ég gerði í raun ekkert sjálfur varðandi það.“

Ungur listamaður frá Akureyri hannaði útlit síngúlsins

„Þegar kom að „coverinu“ fyrir þessi lög var ég ekki viss hvað ég vildi fá út úr því. Þannig ég heyrði í Oddi, en hann er ungur listamaður héðan frá Akureyri, alltaf gaman að vinna með fleiri skapandi einstaklingum héðan úr bæ og hann sá einnig um teikninguna á fyrstu plötu minni, The Mancave Tapes. En ég sagði honum bara að túlka lögin eins og hann vildi í teikningunni. Og úr varð mjög skemmtileg útkoma sem virkar vel með drunga laganna tveggja!“

Hér má sjá fleiri verk eftir Odd.

Hér má vista lögin sem koma út þann 31. júlí.

Davíð Máni gefur út tvö ný lög

Tengdar greinar

Uppfært: 6. september 2026