Skúli Bragi Geirdal skrifar
Á ferð minni um okkar víðfema og fallega kjördæmi hef ég lent í allskyns vandræðum í öllum veðrum nú í nóvember. Ég er sannarlega ekki einn um það enda vegir landsins uppfullir af spennandi frambjóðendum í leit að sem flestum samtölum við fólkið í landinu. Frambjóðendur keppast nú við að birta myndir og myndbönd af skafrenningi, snjókomu, blindbyljum og fleira til. Allt til þess gert að sýna fólki hversu vandasamt það getur verið að ferðast um landið í nóvember. Sem betur fer er bara kosið á fjögurra ára fresti og oftast á vorin. Þess vegna er þetta nú frekar undantekning en hitt að frambjóðendur þurfi að vaða út í þetta veður og þessa færð í atkvæðaleit.
Það á hinsvegar ekki við um alla þá sem ferðast daglega um á leið sinni til vinnu eða skóla á svo dreifbýlu svæði. Sérstaklega á þetta við um íþróttakrakkana okkar sem eru háð því að komast til keppna og jafnvel landsliðsæfinga allt árið um kring. Keppnir og æfingar fara fram víðsvegar um landið, þó oftast á höfuðborgarsvæðinu. Afleidd áhrif íþrótta á hagkerfi landsins, svosem veitingastaði, gististaði, vegasjoppur, íþróttaverslanir og fleira til eru gríðarlega mikil. Það er því okkur Framsóknarfólki mikið í mun að öll komist leiða sinna, á sem öruggastan hátt.
Það væri auðvitað best að lofa bara betra veðri! Gera það að stóra kosningamálinu. Það er hinsvegar ógjörningur og óábyrgt að reyna að lofa því og það stendur Framsókn ekki fyrir. Framsókn vill byggja á traustum og öruggum grunni. Minni öfgum.
Þess vegna vill Framsókn skoða útfærslur á ívilnunum til ferðaþjónustufyrirtækja sem eru með vel útbúin ökutæki og atvinnubílstjóra í vinnu við að keyra íþróttahópa, því öryggið er mikilvægt. Reyna að fækka þeim skiptum sem að þreyttir þjálfarar eða fararstjórar keyra með hóp af krökkum landshluta á milli.
Þess vegna vill Framsókn útvíkka úrræðið sem Loftbrúin hefur verið. Fjölga skiptum eða koma henni að einhverju leyti inn til íþróttafélaga, svo hægt sé að fljúga landshluta á milli.
Þess vegna hefur Framsókn aukið útgjöld til vegakerfisins töluvert á liðnum kjörtímabilum, til þess að auka öryggi á þjóðvegum.
Þess vegna vill Framsókn auka framlag til Ferðajöfnunarsjóðs ÍSÍ, svo að íþróttafélög geti keypt góða þjónustu til þess að ferðast með íþróttabörn landsins.
Þess vegna vill Framsókn skoða hugmyndir um hvernig hægt er að draga úr kostnaði við gistingu íþróttahópa, allt árið um kring.
Þess vegna er er best að kjósa Framsókn. Minni öfgar, meiri Framsókn.
Höfundur er fyrrum knattspyrnuþjálfari yngri flokka á landsbyggðinni og í 4. sæti á lista Framsóknar í Norðausturkjördæmi
UMMÆLI