Srdjan Tufegdzic, Túfa, skrifaði í dag undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild KA og tekur við sem nýr þjálfari liðsins. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef félagsins í dag.
Túfa er KA fólki vel kunnugur en hann kom upprunalega til liðsins sumarið 2006 sem leikmaður. Hann hefur leikið yfir 100 leiki í deild og bikar með liðinu en hann lagði skónna á hilluna 32 ára gamall sumarið 2012 vegna meiðsla.
Eftir nokkur ár í þjálfun hjá KA tók hann við sem aðalþjálfari meistaraflokks karla í ágúst 2015. Leiðir skildu að loknu sumri 2018 og í kjölfarið stýrði Túfa liði Grindavíkur og svo Val sem aðstoðarþjálfari áður en hann hélt til Svíþjóðar. Hann tók við sænska liðinu IFK Värnamo í fyrra en hætti þjálfun þess fyrr á árinu og snýr nú loks aftur heim til Akureyrar.
„Það eru gríðarlega jákvæðar fregnir að Túfa sé nú mættur aftur til KA en hann er gríðarlega metnaðarfullur og leggur sig ávallt allan fram við að ná markmiðum sínum. Túfa er ákaflega vel liðinn innan félagsins og mótaði hann ansi marga iðkendur, bæði stráka og stelpur, innan félagsins á sínum tíma. Við treystum honum svo sannarlega til þess að stýra KA aftur upp í deild þeirra bestu og hlökkum mikið til að vinna aftur með þessum frábæra karakter,“ segir í tilkynningu KA sem má lesa í heild á vef félagsins með því að smella hér.










