Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg (SSS) og Krónan stóðu fyrir fyrsta Stubbamótinu sem fram fór á skíðasvæði Siglufjarðar í Skarðsdal þann 28. febrúar.
Karolina Rudnik var með myndavélina á lofti þar sem 108 keppendur, 9 ára og yngri, mættu til leiks í blíðskaparveðri. Mótið var afar vel sótt enda mikill áhugi á skíðaíþróttinni á Siglufirði.
Mótið fór fram á neðra lyftusvæðinu þar sem keppt var í svonefndri Stubbabraut. Keppendur fóru tvær umferðir í brautinni og fengu þannig tækifæri til að bæta tímann sinn og njóta skíðagleðinnar til fulls. Fyrir yngstu iðkendurna var einnig útbúin styttri stubbabraut við töfrateppið, þannig að allir gátu tekið þátt á sínum forsendum og upplifað gleðina við að renna sér niður brekkurnar.
Starfsfólk frá Krónunni gaf öllum keppendum mótsgjöf og verðlaunapening í lok keppni. Einnig setti Krónan upp ávaxtabar þar sem gestir gátu nælt sér í hollan bita og að keppni lokinni voru grillaðar pylsur.
Hér má sjá stutt myndband sem sýnir stemninguna á keppnisdegi og neðar má sjá myndir:




















