Sóley Jónsdóttir, kraftlyftingakona í KFA varð í dag Evrópumeistari telpna í +84 kg flokki. Hún gerði sér einnig lítið fyrir og bætti Íslandsmeti í samanlögðum árangri í opnum flokki, 527,5 kg.
Í hnébeygju tók Sóley gullið með 215 kg en í bekkpressu og lyfti Sóley 112,5 kg, en það er nýtt Íslandsmet telpna og í unglingaflokki, það skilaði henni bronsi í greininni. Í réttstöðulyftu fékk Sóley gullið með því að lyfta 200 kg, samtals 527,5 kg.
UMMÆLI