
Forráðamenn KA tilkynntu kollegum sínum hjá Þór það í gærkvöld að ákveðið hefði verið að slíta samstarfi félaganna í meistaraflokki karla í handbolta. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í morgun.
Félögin hafa frá árinu 2006 teflt saman fram liði undir merkjum Akureyrar Handboltafélags en nú er ljóst að KA verður með lið í 1. deild á næstu leiktíð. Óljóst er hvort þar verður einnig lið með nafni Þórs eða Akureyrar Handboltafélags, en vilji Þórsara var til þess að halda samstarfinu áfram.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Sjá einnig
Óvíst hvort Akureyri Handboltafélag tefli fram liði næsta vetur










