Í tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2019-2023 kemur fram að gert er ráð fyrir að framkvæmdir við byggingu legudeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri verði hafnar árið 2023. Í áætluninn kemur fram að útgjöld til reksturs sjúkrahúsþjónustu aukast um 10,6% á áætlunartímabilinu eða um 9 milljarða króna. Undir sjúkrahúsþjónustu falla framlög til Sjúkrahússins á Akureyri, Landspítala, almennrar sjúkrahúsþjónustu og erlendrar sjúkrahúsþjónustu. Þessi aukning er að jafnaði um 2% raunvöxtur á ári. Ekki liggur fyrir fyrr en í fjárlögum ársins 2019 hvernig þessum fjárhæðum verður skipt á einstaka stofnanir.
Bjarni Jónasson, forstjóri SAk, segir í pistli sínum inn á heimasíðu sjúkrahússins að hann taki þessari tillögu fagnandi. ,,Ég fagna því og vænti þess að næstu skref undirbúnings og hönnunarvinna geti farið af stað strax á næsta ári. Legudeildarbygging er ekki bara mikilvæg sjúklinganna vegna heldur er hún einnig nauðsynleg til að geta boðið starfsfólki vinnuaðstöðu sem uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru í dag og hjálpar til við að laða það að og halda í það.“
UMMÆLI