Ísak Andri Bjarnason, 20 ára piltur búsettur á Akureyri, er nálægt því að verða heimsmeistari á snjóskautum. Ísak hefur búið meginþorra ævi sinnar á Akureyri en er fæddur á Neskaupsstað. Hann hefur æft snjóskauta í 1 og hálft ár en hefur æft parkour í 8 ár.
Ísak sigraði Iceland Winter Games í Hlíðarfjalli á dögunum og er nú jafn að stigum keppanda frá Kanada sem sigraði sambærilega keppni þar. Þeir keppast nú um heimsmeistaratitilinn á snjóskautum en vinningshafinn fer til Kína og Kóreu og keppir þar á heimsmeistaramóti á næsta ári.
Í augnablikinu er í gangi kosning á Facebook-síðu Sled Dogs Snowskates, sem er fyrirtækið sem stendur fyrir keppninni, sem stendur yfir í eina viku. Kosningunni líkur föstudaginn 13. Apríl og þegar þetta er skrifað hefur Ísak yfirhöndina. Hægt er að taka þátt í kosningunni hér. Til þess að kjósa kjósa Ísak og styðja hann og Ísland skal ýta á myndbandið, halda like takkanum inni og ýta á Wow kallinn;.
UMMÆLI