Hlynur leiðir lista Miðflokksins á Akureyri áfram

Hlynur Jóhannsson, íþróttakennari, bæjarfulltrúi og rekstrarstjóri, mun leiða lista Miðflokksins á Akureyri í komandi sveitarstjórnarkosningum. Inga Dís Sigurðardóttir, náms- og starfsráðgjafi skipar annað sæti á lista flokksins.

Egill Einarsson, verslunarmaður er í þriðja sæti og Katrín Vilhjálmsdóttir, snyrtifræðingur og sjúkraliði í því fjórða. Í fimmta sæti er Hannes Karlsson, framkvæmdastjóri og í sjötta Sigurbjörg Níelsdóttir, skrifstofustjóri.

Listann í heild má sjá á Facebook-síðu Miðflokksins á Akureyri hér að neðan:

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!