Anna Lovísa og Emilía Björt sigruðu Sturtuhausinn 2026

Anna Lovísa og Emilía Björt Hörpudóttir sigruðu Sturtuhausinn, söngkeppni VMA, 2026 í Sjallanum í gærkvöld. Þær fluttu lagið Something in the Orange eftir Zack Bryan. Fjallað er um keppnina á vef VMA.

Í öðru sæti varð Ásta Ólöf Jónsdóttir sem tók lagið Einmana eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson úr Ávaxtakörfunni. Í þriðja sæti varð Ninja Dögun Gunnarsdóttir með lagið Lover Girl eftir Laufey.

Sem sigurvegarar Sturtuhaussins 2026 verða Anna Lovísa og Emilía Björt fulltrúar VMA í Söngkeppni framhaldsskólanna vorið 2026.

Í ár voru níu lög í keppninni. Hin sex lögin fluttu Sigrún Dalrós Eiríksdóttir, Ólöf Alda Valdemarsdóttir, Emelía Bjarnveig Skúladóttir, Gunnþór Ingi Jóhannesson, Droplaug Dagbjartardóttit, Benjamín Kári og Elías Már og Sigrún Dalrós Eiríksdóttir.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!