66 styrkir veittir úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra

Úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra hefur lokið störfum og eiga allir umsækjendur að hafa fengið svarbréf sent inn í umsóknargáttina. Þessu er greint frá á vef SSNE.

Að þessu sinni voru veittir 66 styrkir í þremur flokkum:

35 menningar- og samfélagsverkefni
18 atvinnu- og nýsköpunarverkefni
13 stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningar

Alls var úthlutað 74 miljónum en sótt var um fyrir 290 milljónir, í 126 umsóknum og því ljóst að samkeppnin var töluverð.

Rafræn úthlutunarhátíð fer fram fimmtudaginn 11. desember kl. 15:00 og má finna hlekk á hátíðina hér

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!