SinfoniaNord spilar strengi á nýjustu plötu Múm

Sinfonia Nord spilar strengi á plötunni History of Silence sem er sjöunda stúdíóplata stórhljómsveitarinnar Múm.

Upptökur áttu sér stað víða um heim á tveggja ára tímabili m.a. í Sudestudio á Ítalíu og einnig í Reykjavík, Berlín, Aþenu, Helsinki, New York og Prag. Strengjaupptökur fóru svo fram í Hofi á Akureyri og Ingi Garðar Erlendsson sá um strengjaútsetningar.

Platan er aðgengileg á LP vinyl, CD og hljóðsnælduútgáfan sem  kom út í 100 eintökum er uppseld. Einnig er hægt að hlýða á gripinn á streymisveitum eins og Spotify.

Nánari umfjöllun má finna á vef Menningarfélags Akureyrar með því að smella hér.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!