Akureyrarvaka verður haldin hátíðleg 29.-30. ágúst 2025. Áhersla verður lögð á flóamarkaðsstemningu í miðbænum fyrir félagasamtök, góðgerðarfélög og einstaklinga. Þau sem vilja vera með götusölu er bent á netfangið akureyrarvaka@akureyri.is.
Fyrirtæki og félagasamtök á Akureyri hafa alla jafnan forgang að aðstöðu vegna sölu veitinga og varnings. Umsækjendur skulu hafa öll tilskilin leyfi ef starfsemi þeirra er leyfisskyld. Umsóknir sendist fyrir 15. ágúst.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Akureyrarvaka er árleg bæjarhátíð, haldin síðustu helgina í ágúst sem næst afmæli Akureyrarbæjar 29. ágúst. Hátíðin er full af fjölbreyttum uppákomum og upplifunum þar sem gestir og bæjarbúar njóta viðburða saman.










