Sérefni færir VMA litaljóskassa að gjöf

Jóhann Gunnar Malmquist, sölustjóri málaradeildar fyrirtækisins Sérefni, afhenti í gær listnáms- og hönnunarbraut VMA gjöf frá fyrirtækinu – svokallaðan litaljósakassa. Kassinn getur gefið mismunandi birtu og er með fjórar birtustillingar: náttúruleg birta, útfjólublátt, dagsbirta og hlý birta (ambient).

„Kennararnir Borghildur Ína Sölvadóttir og Véronique Legros veittu kassanum viðtöku og þökkuðu Jóhanni/Sérefni þessa góðu gjöf. Þær sjá fyrir sér margvíslega notkunarmöguleika, ekki síst í litafræðikennslu og við samanburð á litum út frá mismunandi birtuskilyrðum, og einnig komi hann að góðum notum við myndatökur nemenda af verkum,“ segir á vef VMA.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!