Súlur Stálgrindarhús og Íslenska Gámafélagið hafa gert verksamning um byggingu nýrrar flokkunarstöðvar við Ægisnæs á Akureyri. Um er að ræða stálgrindarhús, alls 1.350 fermetrar að flatarmáli, með vegghæð upp á 9,7 metra. Byggingin mun hýsa flokkunaraðstöðu sem mun gegna lykilhlutverki í meðhöndlun úrgangs á svæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Súlur Stálgrindarhús.
Gert er ráð fyrir að uppsetning hefjist síðsumars um leið og byggingarefni berst á verkstað, og áætlað er að framkvæmdirnar taki um átta til tíu vikur frá þeim tímapunkti. Þessi nýja flokkunarstöð er hluti af víðtækari áætlun Íslenska Gámafélagsins um uppbyggingu og endurbætur á innviðum sínum á landsvísu, með sérstakri áherslu á umhverfisvæna úrgangsmeðhöndlun og bætt þjónustu við íbúa og fyrirtæki.
Kristján Heiðar Kristjánsson, framkvæmdastjóri Súlur Stálgrindarhús ehf., segir verkefnið bæði spennandi og mikilvægt fyrir svæðið á heimasíðu Súlur.
„Við erum afar stolt af því að taka þátt í þessu verkefni sem styrkir innviði fyrir umhverfisvæna starfsemi á Norðurlandi. Það er okkur sérstakt ánægjuefni að vinna með Íslenska Gámafélaginu að því að skapa lausnir sem bæði mæta kröfum nútímans og stuðla að sjálfbærari framtíð.Verkefnið undirstrikar aukna áherslu Íslenska Gámafélagsins á aukið þjónustustig á Norðurlandi og stuðlar jafnframt að atvinnusköpun í byggingariðnaði og sorphirðuþjónustu á svæðinu,“ segir hann.
Mynd: Kristján Heiðar Kristjánsson, framkvæmdastjóri Súlur Stálgrindarhús og Jón Þór Frantzson forstjóri Íslenska Gámafélagsins undirrita verksamning um bygginguna