Maður ákærður fyrir tilraun til manndráps vegna stunguárásar á Akureyri

Maður á tvítugsaldri sem veittist að öðrum með eggvopni í miðbæ Akureyrar hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps. Árásin átti sér stað aðfaranótt laugardags um Verslunarmannahelgi í fyrra. Í ákæru segir að sá sem varð fyrir árásinni hafi hlotið lífshættulega stunguáverka á brjósti, baki og herðum, en hann var stunginn að minnsta kosti fjórum sinnum.

Málið verður þingfest í Héraðsdómi Norðurlands Eystra þann 30. apríl næstkomandi. RÚV greindi fyrst frá.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!