Framsókn birtir framboðslistann – Ingibjörg Isaksen áfram efst

Framsókn birtir framboðslistann – Ingibjörg Isaksen áfram efst

Framboðslisti Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar var samþykktur á kjördæmisþingi flokksins á Hótel Seli í Mývatnssveit síðdegis í dag. Ingibjörg Ólöf Isaksen, þingmaður Framsóknar, leiðir listann. Í öðru sæti er Þórarinn Ingi Pétursson, sem einnig er þingmaður flokksins. Tveir af þremur þingmönnum flokksins í kjördæminu leiða því listann meðan sá þriðji, Líneik Anna Sævarsdóttir, skipar heiðurssætið, en hún staðfesti við AusturFrétt á dögunum að hún hyggjist ekki gefa kost á sér í komandi kosningum.

Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar í Múlaþingi, er í þriðja sæti. Skúli Bragi Geirdal, verkefnisstjóri Fjölmiðlanefndar og Akureyringur vermir fjórða sætið og Þuríður Lillý Sigurðardóttir, bóndi og bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð skipar það fimmta.

Framboðslisti Framsóknar í Norðausturkjördæmi:

  1. Ingibjörg Ólöf Isaksen, alþingismaður, Akureyri.
  2. Þórarinn Ingi Pétursson, alþingismaður, Grýtubakkahreppi.
  3. Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar, Múlaþingi.
  4. Skúli Bragi Geirdal, verkefnisstjóri Fjölmiðlanefndar, Akureyri.
  5. Þuríður Lillý Sigurðardóttir, bóndi og bæjarfulltrúi, Fjarðabyggð.
  6. Kristinn Rúnar Tryggvason, bóndi, Norðurþing.
  7. Ásdís Helga Bjarnadóttir, yfirverkefnastjóri, Múlaþingi.
  8. Jón K. Ólafsson, forstöðumaður, Fjallabyggð. 
  9. Eiður Pétursson, vélfræðingur, Norðurþingi.
  10. Halldóra Magnúsdóttir, kennari, Eyjafjarðarsveit.
  11. Elís Pétur Elísson, framkvæmdastjóri, Fjarðarbyggð.
  12. Kristjana Louise Friðbjarnardóttir, starfsmaður á hjúkrunarheimili,  Vopnafirði.
  13. Eggert Stefánsson, bóndi, Langanesbyggð.
  14. Patrycja Maria Reimus, námsráðgjafi, Þingeyjarsveit.
  15. Halldóra Hauksdóttir, lögmaður, Akureyri.
  16. Monika Margrét Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri, Dalvíkurbyggð.
  17. Snæbjörn Sigurðson, verkefnastjóri,  Akureyri.
  18. Aðalheiður Björt Unnarsdóttir, ritari, Múlaþingi.
  19. Egill Olgeirsson, ellilífeyrisþegi, Norðurþingi.
  20. Líneik Anna Sævarsdóttir, alþingismaður, Fjarðarbyggð.

,,Ég er stolt af því að fá að leiða þennan öfluga lista okkar Framsóknarfólks í kjördæminu. Við byggjum á góðri reynslu, dýrmætum mannauð og breiðri þekkingu á kjördæminu öllu. Við höfum átt í góðu samtali við fólkið í kjördæminu og göngum full tilhlökkunar til samtals við kjósendur, enda eru tækifærin mörg og fjölbreytt. Við viljum halda áfram að efla heilbrigðisþjónustu um land allt, vinna að orkuöryggi, húsnæðismálum og ekki síst að vinna að lækkun vaxta og verðbólgu fyrir fólkið í landinu. Við erum stolt af þeim árangri sem náðst hefur í flóknu samstarfi á síðustu árum og hlökkum til samtalsins næstu vikna,“ segir Ingibjörg Isaksen, oddviti og þingmaður, í tilkynningu.

UMMÆLI

Sambíó