Þriðjudagsfyrirlestur á Listasafninu

Þriðjudagsfyrirlestur á Listasafninu

Þriðjudagsfyrirlestrarnir ættu að vera Akureyringum kunnir en þeir hafa farið fram í fjöldamörg ár. Fyrsti fyrirlestur vetrarins verður næstkomandi þriðjudag kl.17-17.40 á Listasafninu á Akureyri.

Þýski myndlistarmaðurinn og verkefnastjórinn Michael Merkel mun halda fyrirlesturinn undir yfirskriftinni Nobody Has the Intention to Green a Wall, fer hann fram á ensku og er aðgangur ókeypis. Þetta kemur fram á vef Listasafnsins, þar segir einnig:

Í fyrirlestrinum mun Merkel kynna umhverfisverkefni lista- og menningarmiðstöðvarinnar GEH8 í Dresden. Árið 2022 hóf GEH8 tilraunaverkefni sem sameinar umhverfisvernd og hönnun. Í samvinnu við fjóra háskóla voru sett af stað fræðsluverkefni þar sem nemendur þróuðu skapandi hönnun fyrir grænkun framhliðar GEH8. Þessar hugmyndir skera sig ekki aðeins út fyrir tæknileg gæði heldur einnig hugmyndaríka hönnun.

Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri og Gilfélagsins. Aðrir fyrirlesarar eru Wolfgang Hainke, myndlistarmaður,  Snæfríður Sól Gunnarsdóttir, leikstjóri og listakona, Yuliana Palacios, myndlistarkona, Loji Höskuldsson, myndlistarmaður, og Anna Richardsdóttir, gjörningalistakona.

UMMÆLI

Sambíó