Framsókn

Páll Óskar treður upp á Pollamótinu

Páll Óskar treður upp á Pollamótinu

Pollamót Samskipa verður haldið í 36. sinn á íþróttasvæði Þórs um helgina. 66 lið eru skráð til leiks á mótinu þetta árið og spilað verður á föstudag og laugardag.

Skemmtidagskráin er ekki af verri endanum frekar en fyrri ár. Á föstudagskvöld verða það Dósi, Club Dub og DJ Lilja sem halda uppi stuðinu frá kl. 21:00 á pallinum við Hamar. Páll Óskar lokar mótinu með balli í Boganum á laugardagskvöld frá kl. 23:00 til 03:00. Hægt er að nálgast miða á viðburðina á minnmidi.is.

VG

UMMÆLI