NTC

Kirkjutröppurnar lokaðar – Áætluð verklok  í októberLokaðar kirkjutröppur. Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson.

Kirkjutröppurnar lokaðar – Áætluð verklok  í október

Kirkjutröppunum á Akureyri hefur nú verið lokað vegna endurnýjunar á þeim og nánasta umhverfi þeirra.Áætlað er að verklok verði í október næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar þar sem beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda.

„Löngu tímabært var orðið að ráðast í endurnýjun á tröppunum sem voru farnar að láta mjög á sjá og gátu jafnvel reynst varasamar á veturna. Kirkjutröppurnar verða byggðar upp að nýju og steyptar í sömu mynd og þær hafa verið en um leið verður komið fyrir snjóbræðslulögnum í öllum þrepum og pöllum. Lýsing við og í tröppunum verður endurnýjuð, frárennsliskerfi komið í viðunandi lag og tryggt að merkingar séu með þeim hætti að þær auðveldi sjóndöprum og hreyfihömluðum að fara um þessa vinsælu gönguleið,“ segir í tilkynningunni.

Nú er unnið að merkingum á svæðinu og verða nánari upplýsingar birtar á heimasíðu bæjarins á allra næstu dögum.

VG

UMMÆLI

Sambíó