Þór/KA náði toppsæti Bestu deildarinnar með sigri á Breiðabliki í Boganum í gær. Leiknum lauk með 2-0 sigri Þór/KA.
Hulda Ósk Jónsdóttir og Sandra María Jessen skoruðu mörkin í leiknum. Þór/KA er núna með 9 stig eftir fyrstu fjóra leikina í Bestu deildinni þetta sumarið og Sandra María Jessen er markahæsti leikmaður deildarinnar eftir markið sitt í gær.
UMMÆLI