Halldór Örn og Brynjar Hólm stýra Þórsliðinu næsta vetur

Halldór Örn og Brynjar Hólm stýra Þórsliðinu næsta vetur

Handknattleiksdeild Þórs hefur samið við Halldór Örn Tryggvason um að hann verði þjálfari Þórsliðsins í Grill 66 deildinni á næsta tímabili. Brynjar Hólm Grétarsson snýr aftur heim og verður spilandi aðstoðarþjálfari. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef félagsins í dag.

„Handboltapenninn var á lofti í Hamri í morgun þegar tveir ungir leikmenn endurnýjuðu samninga sína við handknattleiksdeild Þórs, einn Þórsari sneri aftur heim eftir þriggja ára fjarveru til að spila og þjálfa og þjálfari endurnýjaði samning eftir að hafa verið í fæðingarorlofi,“ segir í tilkynningunni.

Þeir Kristján Páll Steinsson og Viðar Ernir Reimarsson skrifuðu undir samning við félagið í morgun. Kristján Páll er efnilegur markvörður sem hefur átt góðar innkomur í leikjum Þórsliðsins í vetur og farið vaxandi með hverju tækifærinu. Hann endurnýjar nú samning sinn við félagið og semur til tveggja ára.

Viðar Ernir hefur þrátt fyrir ungan aldur vakið athygli sem öflugur leikmaður í skyttustöðunni vinstra megin og meðal annars verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands. Hann hefur verið óheppinn með meiðsli og missti af mörgum leikjum á nýliðnu tímabili. Viðar Ernir endurnýjar samning sinn við félagið til næstu tveggja ára.

Árni Rúnar Jóhannesson, formaður handknattleiksdeildar Þórs, kveðst ánægður með þessar ráðningar sem staðfestar voru í morgun. „Við höldum áfram með uppbyggingarstarfið sem við höfum verið í að undanförnu og horfum þá bæði til þess að þróa áfram okkar ungu leikmenn, en líka að fá heim reynda Þórsara sem hafa verið að spila annars staðar,“ segir Árni.

Nánari umfjöllun og fleiri myndir má finna á vef Þórsara.

Sambíó

UMMÆLI