Skautafélag Akureyrar vann magnaðan sigur á Skautafélagi Reykjavíkur þegar liðin mættust í úrvalsdeild karla í íshokkíi, Hertz-deildinni, í Skautahöllinni á Akureyri í gær.
Gestirnir úr Reykjavík byrjuðu leikinn mun betur og komst í 5:1 forystu en áður en önnur lota var búin höfðu SA jafnað metin í 5:5.
SA bættu svo við tveimur mörkum til viðbótar í þriðju lotunni og tryggðu sér frábæran 7:5 sigur. Uni Blöndal Sigurðsson skoraði þrjú mörk fyrir SA. Þá skoruðu Hafþór Sigrúnarson, Ormur Jónsson, Andri Sverrisson og Gunnar Arason eitt mark hvor.
SA er í toppsæti deildarinnar með 27 stig eftir tíu leiki. SR eru í öðru sæti með 16 stig eftir 11 leiki.
UMMÆLI