Leikfélag Akureyrar frumsýnir Skugga Svein eftir Matthías Jochumsson 11. febrúar næstkomandi. Af því tilefni býður Leikfélag Akureyrar, Flóra menningarhús og Símenntun Háskólans á Akureyri til málstofu á Sigurhæðum fimmtudaginn 17. febrúar kl. 17-18:30.
Þar verða umræður og umfjöllun um verkið og þjóðskáldið en 100 ár voru árið 2020 frá andláti Matthíasar.
Dagskrá:
· Kristín Þóra Kjartansdóttir – húsið Sigurhæðir, listamaðurinn Matthías og fjölskylda.
· Jón Gnarr – sjálfur Skugga Sveinn, útilegumennirnir í verkinu með hliðsjón af hugtakinu útilokunarmenning (cancel culture) nútímans.
· Björgvin Franz, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Árni Beinteinn – tónlist.
· Marta Nordal leikhússtjóri og leikstjóri verksins – umræður.
Skráning á málstofuna er á simenntunha.is. Enginn aðgangseyrir verður á málstofuna en það er takmarkað sætapláss.
UMMÆLI