Handboltakappinn Heimir Örn Árnason tók fram skónna að nýju í vetur til þess að spreyta sig með KA mönnum í Grill66 deild karla. Undanfarin ár hefur Heimir dæmt í Olís deild karla í handbolta og var ásamt félaga sínum Sigurði Þrastarssyni hluti af besta dómarapari landsins á síðasta tímabili.
Eftir að Heimir staðfesti það að hann myndi spila fyrir KA urðu ákveðin lið óánægð með að hann fengi að dæma áfram í Olís deildinni þar sem sum liða sem keppa þar tefla einnig fram unglingaliði í Grill66 deildinni. Það hefði því getað komið upp að Heimir myndi lenda í því að dæma og keppa gegn sama félagi í sömu vikunni.
Heimir lék fyrsta leik KA í vetur sem var gegn ÍBV U en fór illa úr lið á putta og er því meiddur þessa stundina en það styttist í að hann verði klár í slaginn á ný.
UMMÆLI