KA mun senda handboltalið til leiks í 1. deildinni næsta vetur í fyrsta skipti síðan árið 2006. KA dró sig út úr Akureyri Handboltafélagi. Þann 1. júní mætti liðið á sína fyrstu æfingu. Stefán Árnason er nýr þjálfari liðsins og stjórnaði hann æfingunni.
Lið KA er ungt og sprækt og segir á heimasíðu félagsins að mikil tilhlökkun sé í hópnum. Myndir frá æfingunni má sjá á vef KA hér.
UMMÆLI