Netið kom fyrst til Íslands 1986 en aðeins örfáir höfðu aðgang að því þá.
Árið 1989 voru töluvert fleiri komnir með aðgang að netinu hér á landi en þá var það allt annað en það er í dag.
Í dag eru næstum því allir á Íslandi tengdir netinu. Á nokkrum árum hefur netið farið úr því að vera ekki til, yfir í það að vera inná hverju einasta heimili.
Netið hefur sýna kosti en einnig galla og því ber að varast hvað þú gerir á netinu. Frá því að netið kom hefur fólk átt mun léttara með að afla sér upplýsinga. Í dag eru allar tölvur á Íslandi tengdar netinu sem gerir þeim kleift að setja hvað sem er inn á netið og jafnvel nafnlaust. Eftir að internetið kom hefur það haft mikil áhrif á samfélagið t.d. fer fólk sjaldnar á bókasöfn og sendir færri póstkort. Það sem þú setur á netið hverfur aldrei og því má aldrei setja neitt á netið sem gæti haft slæmar afleiðingar. Nær allar vinnur tengjast netinu á einn eða annan hátt nú til dags. Áður fyrr voru einu leiðirnar til þess að hafa samskipti, sem ekki voru í eigin persónu með síma eða með bréfum. Í dag fara flest öll samskipti í gegnum netið bæði persónuleg samskipti og vinnutengd.
Við bjuggum til sex reglur sem allir ættu að fara eftir inná netinu, sérstaklega ungmenni.
- Ekki senda nektarmyndir
- Ekki tala við ókunnuga
- Ekki tala illa um aðra á netinu eða segja eitthvað neikvætt.
- Þú skalt biðja um leyfi annara ef þú ætlar að birta mynd eða upplýsingar af öðrum.
- Ekki segja neitt við aðra á netinu sem þú getur ekki sagt í eigin persónu.
- Ekki þykjast vera einhver annar en þú ert fyrir athygli á netinu.
Þetta eru reglur sem við viljum að unglingar í dag fylgi. Okkur finnst að unglingar í dag séu of kærulausir í garð gjörða sinna á netinu og gera sér ekki grein fyrir því hvaða afleiðingar það gæti haft í för með sér. Þess vegna viljum við koma þessum skilaboðum á framfæri.
Brynhildur Írena Sunna Björnsdóttir, Hildur Arnarsdottir, Ísafold Kelley og Kristrún Ríkey Ólafsdóttir.
Fjölmiðlaskólinn á Akureyri er námskeið á vegum Akureyrarbæjar í samstarfi við Vinnuskólann. Ungmenni úr 8.bekk í skólum bæjarins koma saman og fá fræðslu um helstu grunnatriði fjölmiðlunnar og myndbandsgerðar. Eftir það þurfa þau að standa á eigin fótum og semja sitt eigið efni undir leiðslu starfsmanna Vinnuskólans.
UMMÆLI