Leita að manni um tvítugt sem féll í Fnjóská

Leita að manni um tvítugt sem féll í Fnjóská

Um 130 viðbragðsaðilar eru nú að stöfum við leit að manni um tvítugt sem féll í Fnjóská skammt frá Pálsgerði. Maðurinn var með þremur félögum sínum en hvarf hann þeim sjónum í ánni. Tilkynning barst um klukkan 18:30 í kvöld og voru björgunarsveitir þegar kallaðar út ásamt þyrlu frá Landhelgisgæslunni.

Fimm leitardrónar eru notaðir og sérþjálfaðir straumvatnsbjörgunarmenn eru komnir á vettvang. Þá er von á leitarhundum. Aðstæður á vettvangi eru erfiðar að því leyti að Fnjóská er nokkuð lituð á þessum slóðum en einnig vegna þess að í ósum hennar kvíslast hún mikið þannig að leitarsvæði er víðfeðmt og sums staðar er vatnið það grunnt að erfitt er að koma við tækjum við leitina.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lög­regl­unni á Norður­landi Eystra á Face­book.

Screenshot
Sambíó

UMMÆLI

Sambíó